Friday, January 05, 2007
Nýtt ár, nýtt ferðalag

Ótrúlegt en satt, nýtt ár komið, og þrátt fyrir fögur fyrirheit á síðasta ári er ég þyngri en ég hef nokkurn tímann verið.  92 kíló er staðreynd sem ekki verður horfist í augu við öllu lengur.  Ég ætla ekki að gefa neinar yfirlýsingar en nú er ljóst að ég verð að taka í taumana ef að ég ætla einhvern tímann að sigrast á þessum púka.    Bóndinn á heimilinu er sömuleiðis að hugleiða átak og næstu daga kemur í ljós á hvaða braut við hjónin stefnum. 

Vonandi verður ný vika upphafið að nýju og árangursríku ferðalagi. 


Posted at 04:05 pm by Bullubumba
Make a comment  




Monday, April 24, 2006
Klóri, klóri í haus .........

 Ég er ekki alveg að botna í baðviktinni minni.   Þetta er digitalvikt sem á að vera mjög nákvæm, og ekki vantar það, ég sá sömu töluna þrisvar sinnum í morgun Þegar ég tók þá ákvörðun að stíga á viktina og taka afleiðingum síðustu sukkvikna. 

Hún sýnir 87,6, sem mér finnst alveg með ólíkindum, og miðað við hvað ég finn á fötunum mínum.  Ég ætla að stelast til að setja þessa tölu inn á reglustikuna mína, þar til hið rétta kemur í ljós.  En hér eftir verða mánudagsmorgnar í hverri viku viktardagar hjá mér. 


Posted at 05:16 am by Bullubumba
Comments (4)  




Wednesday, April 19, 2006
Aftur á upphafsreit

Eins og flesta hefur grunað, þá datt ég út úr átakinu um mánaðarmótin febrúar - mars og er komin á upphafsreit aftur.  Ég ætla ekkert að afsaka mig neitt, það leysir ekki vandann, en ætla mér að koma mér inn á beinu brautina aftur.  Ég hef ekki stigið viktina alveg nýlega, en finn bæði á fötum og allri minni líðan að ástandið er slæmt, og mér líður bölvanlega út af því. 

Ég miða við að upphafspunkturinn verði á mánudaginn næsta, þannig að ég hef næstu tvo daga og helgina til að setja mig í gírinn.   


Posted at 05:09 am by Bullubumba
Comments (2)  




Friday, March 03, 2006
Ekki komin í gírinn ennþá

Það gengur frekar illa hjá mér að finna gírinn aftur, og ég hef ekki mætt í viktun síðan ég veit ekki hvenær.  Heilsan er öll að koma til, ég er reyndar ennþá með slæman hósta sem ég virðist hreinlega ekki ætla að losna við, hef verið með hann síðan í janúar og væri alveg sátt við að verða laus við hann.  Það er hins vegar engin afsökun. 

Ég var hins vegar að byrja í nýrri vinnu, og þá hefði verið svo gullið tækifæri til að svissa aftur yfir í danska en ég hef ekki nýtt það ennþá.  Um helgina er árshátíð og ég hef sagt við sjálfa mig að á mánudaginn byrji ný vika og nú verði ég hreinlega að gera eitthvað í málunum, og fara að mæta i viktun í næstu viku svo ég detti ekki út úr danska aftur.  

Ég hef ekki tapað mér í neitt hömlulaust át sem betur fer, látið sælgæti alveg eiga sig, og núna fyrir einni mínútu eftir að ég byrjaði að skrifa hér, ákvað ég að taka áhættuna, stíga á viktina og athuga hvort hún myndi nokkuð deyja í hræðslu.  Og satt að segja varð ég frekar undrandi.  Heimilisviktin segir 87,9 og það aftur og aftur, og hún hefur hingað til verið nokkuð samhljóða hinni einu sönnu Viktólínu.  Hugsa sér, ef að ég hefði staðið mig betur og haldið áfram á þessu eðalfæði, þá væri ég sjálfsagt farin að nálgast 84 - 85 kíló núna, jafnvel neðar.  Þetta stóra EF.   Nú ætla ég að horfa fram á veginn og gera aðra tilraun til að komast inn á sporið að nýju.   

 


Posted at 01:48 pm by Bullubumba
Comments (4)  




Sunday, February 19, 2006
Jæja,

 Ég er gjörsamlega að stimpla mig út úr þessu öllu saman.  Er búin að vera lasin síðustu tvær vikurnar, en reynt að mæta í vinnuna að mestu leyti, en hef dottið gjörsamlega út úr öllu sem heitir ddv.  Ég hef heldur ekkert mætt í ræktina þessar tvær vikur.  Núna er slenið og mórallinn gjörsamlega að fara með mig, hef ekki orku í að gera neitt.  Ég mætti ekki í viktun í síðustu viku, en ætla mér að mæta næst, enda veitir mér ekki af sparki í rassinn, veit að það verður tala upp á móti, en ég þarf virkilega að fara að koma mér af stað aftur.   Hef aðeins verið að skoða uppskriftir með því hugarfari að breyta þeim og gera þær ddv vænni, en er ekki komin af stað með að elda eftir þeim ennþá. 

Ég varð bara að fá að pústa aðeins.   


Posted at 07:52 am by Bullubumba
Comments (9)  




Wednesday, February 15, 2006
15. febrúar 2006

Eldri færslur :

Posted at 04:40 am by Bullubumba
Make a comment  

14. febrúar 2006, Foj

það er ekki nóg með að tikkerinn minn sé horfinn, heldur er komin auglýsing með rollum á fullu á staðinn þar sem hann var.  Ég er ekki hissa þó einhverjir séu að færa sig milli bloggheima. 


Posted at 04:33 am by Bullubumba
Comment (1)  

14. febrúar 2006, Síðasta vika og það sem af er þessari

hafa verið frekar endaslepptar vegna veikinda á heimilinu.  Einhvern veginn vill það fara svo að það er erfitt að halda í við sig þegar ástandið er þannig. Nú sé ég fram á að þurfa að koma mér í gírinn aftur til að halda áfram.  Ég er ekki bjartsýn á að ég nái markmiði mínu fyrir ferðina út í mars, en ætla að stefna að því samt sem áður að komast eins nálægt því og kostur er. 


Posted at 04:32 am by Bullubumba
Make a comment  

8. febrúar 2006, Þá er viktunin að baki

og farið 1,5 kg. eftir þessa viku.  Ég er verulega ánægð með þessa útkomu,  bjóst svo sem við að það yrði farið í kringum eitt kíló, en þetta var framar vonum. 

Ég er farin líka að fá viðbrögð um að ég hafi grenst frá vinnufélögum, og það er ekki til að minnka áhugann á að gera enn betur næst. 


Posted at 04:31 am by Bullubumba
Make a comment  

3. febrúar 2006, Takmarki vikunnar

 hreyfingu er náð.  Ég setti mér það takmark að fara minnst þrisvar í viku í ræktina og í gær var í þriðja skiptið í þessari viku sem ég fór.  Og ég tók vel á því og fann vel fyrir því í gærkvöldi að ég hefði lagt mikið á mig.  Ég stefni á að fara um helgina líka einu sinni til tvisvar.  Ég var að hugsa um það í gær að nú væri ég búin að vera heilan mánuð í ræktinni og er ekki búin að missa áhugann ennþá, frekar öfugt.  Þetta er í fyrst sinn sem ég hef virkilega ánægju af því að fara, finn vellíðanina streyma um mig og veit að það sem ég hef verið að leggja á mig á eftir að færa mig nær takmarki mínu. 

Ég setti mér ný markmið í gærkvöldi.  Ég er að fara í utanlandsferð um miðjan mars og þá langar mig alveg óskaplega mikið til að vera búin að ná af mér 10 kílóum í heildina svo að ég geti virkilega verðlaunað mig úti.  Fyrir ári keypti maðurinn minn nokkrar góðar gallabuxur handa mér úti í Ameríku, en þær urðu mjög fljótt ónothæfar sökum smæðar.  Ég ætla mér að komast í einni af þeim út í mars.  Ég skal !!!!   Það þýðir sem sagt að ég þarf að losa mig við fjögur kíló í febrúar og helst 3 kíló í mars.  Ég veit að það er frekar óraunhæft, en miðað við að mér tókst að farga þremur kílóum í janúar, þrátt fyrir kæruleysi um miðjan mánuðinn, þá ætti þetta ekki að vera neitt svakalegt mál. 

  


Posted at 04:30 am by Bullubumba
Make a comment  




Next Page



Bullubumba
Female